SmartWaste er í notkun hjá fjölbreyttum rekstraraðilum um land allt
Íþaka
Dalvegur 30 - Dalvegur 30A
Fasteignafélagið Íþaka innleiddi sitt fyrsta SmartWaste kerfi árið 2024 í Dalvegi 30. Í
kjölfar þeirrar innleiðingar var kerfið einnig tekið í notkun í Dalvegi 30A og þannig byggt
áfram á sömu nálgun við snjallvæðingu úrgangsstjórnunar í fasteignum félagsins.
Samhliða innleiðingu SmartWaste hefur verið lögð áhersla á að úrgangsaðstaðan sé
snyrtileg og notendavæn ásamt því að flokkun og losun úrgangs sé einföld og skilvirk.
Notendur auðkenna sig við losun og úrgangur er viktaður og skráður notendum og
úrgangsflokkum. Rekstraraðilar á Dalvegi 30 og Dalvegi 30A geta þannig fylgst með
eigin notkun og nýtt upplýsingar í skýrslugjöf.
Katrínartún 6
Katrínartún 6 hýsir bæði Skattinn og Fjársýslu ríkisins ásamt sameiginlegu mötuneyti
starfsfólks. Ólík starfsemi innan hússins skilar af sér mismunandi tegundum og magni
úrgangs og því gagnlegt að hafa góða yfirsýn yfir úrgangsflæðið.
Með SmartWaste er magn og flokkun úrgangs skráð eftir uppruna og rekstraraðilar geta
fylgst með þróun úrgangsmála og fengið betri innsýn í magn og flokkun.
SmartWaste stuðlar jafnframt að snyrtilegri og vel skipulagðri úrgangsaðstöðu sem
einfaldar flokkun og losun fyrir notendur hússins.
Brim
Brim hefur nýtt SmartWaste lausnir frá árinu 2017 til að bæta rekjanleika og yfirsýn yfir
úrgangsstjórnun á flokkunarstöðvum sínum. Í dag eru SmartWaste kerfi í notkun á
þremur starfsstöðvum Brims, á Vopnafirði, Akranesi og í Reykjavík.
Lausnirnar
samanstanda af snjöllum pressugámum og vogarpöllum sem gera kleift að skrá magn
úrgangs rafrænt eftir uppruna.
Með kerfinu getur Brim fylgst með úrgangsflæði í rauntíma, allt frá því að úrgangur berst
frá mismunandi deildum og skipum þar til þjónustuaðili tekur við honum. Þetta eykur
rekjanleika, einfaldar skráningu og veitir betri upplýsingar til greiningar og
umhverfisuppgjörs.
SmartWaste styður þannig við markmið Brims um skilvirkari úrgangsstjórnun, aukið
gagnsæi og betri nýtingu upplýsinga í rekstri.
Heimar
Hafnartorg – Smáralind - Katrínartún 2 – Egilshöll
Fasteignafélagið Heimar hefur innlett SmartWaste í fjórum eignum félagsins sett upp
með góðum árangri og eru kerfin öll í fullri notkun í dag.
Vegferð Heima í snjallvæðingu úrgangslosunar hófst árið 2019 þegar fyrsta SmartWaste
var sett upp og tekið í notkun á Hafnartorgi. Síðan þá hefur innleiðing haldið áfram jafnt
og þétt og lausnin þróast með hverju verkefni, en markmið og hugmyndafræði hafa frá
upphafi verið þau sömu.
Með SmartWaste er hægt að aðgreina úrgang hvers leigutaka og gera notendur þannig
ábyrgari fyrir eigin losun. Markmiðið er að hvetja til aukinnar flokkunar og efla meðvitun
um mikilvægi hennar.
Innleiðing SmartWaste er hluti af sjálfbærnivegferð Heima og liður í að styrkja innviði
rekstrareigna félagsins og hvetja aðila í virðiskeðjunni til áframhaldandi góðra starfa.
Jafnframt er lögð áhersla á úrgangsaðstaða sé snyrtileg, aðlaðandi og í samræmi við
metnaðarfull markmið Heima.
Kerfin þjóna fjölbreyttum hópi viðskiptavina, m.a. verslunum, veitingastöðum og
skrifstofum. Þau hafa skilað góðum árangri með auknu flokkunarhlutfalli, bættri
rekstrarhagkvæmni, meiri yfirsýn yfir úrgangsflæði og skilvirkari úrgangsstjórnun fyrir
bæði notendur og rekstraraðila fasteignanna.
SmartWaste kerfi Heima eru staðsett á
- Hafnartorgi – tekið í notkun 2019
- Smáralind – tekið í notkun 2022
- Katrínartúni 2 – tekið í notkun 2023
- Egilshöll – tekið í notkun 2026
