Meiri yfirsýn,
betri ákvarðanir.
Hafa samband
Frí ráðgjöf og eftirfylgni fylgir öllum uppsetningum
Contact Us
Takk fyrir að hafa samband.
Við munum bjalla í þig við fyrsta tækifæri.
Eitthvað fór úrskeiðis.
Reyndu aftur.
Meiri yfirsýn,
betri ákvarðanir.
Hafa samband
Frí ráðgjöf og eftirfylgni fylgir öllum uppsetningum
Contact Us
Takk fyrir að hafa samband.
Við munum bjalla í þig við fyrsta tækifæri.
Eitthvað fór úrskeiðis.
Reyndu aftur.
Í STUTTU MÁLI...
Snjallari sorpflokkun, skilvirkari rekstur.
SmartWaste sameinar nákvæmar vogir og öflugan notendavænan hugbúnað þar sem skráð er í rauntíma hver hendir hverju, hvenær og í hvaða magni.
Meiri yfirsýn – betri ákvarðanir.
Hvað er SmartWaste?
Nákvæm skráning í rauntíma
Snjallvigtarbúnaðurinn skráir magn úrgangs ásamt því hver hendir, hverju og hvenær.
Upplýsingarnar birtast í notendavænu mælaborði.
Borgað þegar hent er.
Kerfið er aðgangsstýrt og gerir gjaldtöku byggða á raunverulegri notkun hvers aðila
mögulega.
Meiri yfirsýn og hagkvæmni.
Í mælaborði er meðal annars hægt að fylgjast með magni úrgangs, flokkunarhlutfalli og
umhverfisáhrifum tengdum úrgangsmyndun.

Algengar spurningar
-
Fyrir hverja er SmartWaste?
SmartWaste er fyrir alla sem vilja betri yfirsýn yfir sinn rekstur. Úrgangslosun getur verið
stór kostnaðarliður og jafnfram getur fylgt honum talsverð óvissa. Með betri yfirsýn er
hægt að ná betri stjórn á kostnaði, magni og endanlegri meðhöndlun úrgangs.
-
Hvar nýtist SmartWaste best?
SmartWaste er öflug og sveigjanleg lausn sem aðlagast þínum rekstri. Lausnin hentar jafnt
í fjölbýlishúsum, atvinnuhúsnæði, verslunum, þjónustu, skólum og opinberum
stofnunum sem og krefjandi aðstæðum iðnaðarfyrirtækja og í byggingarframkvæmdum.
Snjallsorp aðlagast þínum rekstri og breytir úrgangsstjórnun í mælanlegan ávinning.
-
Þarf að kaupa vogir til að geta notað mælaborðið?
Nei það er ekki nauðsynlegt. Hægt er að fá aðgang að mælaborðinu þar sem
úrgangsupplýsingar eru byggðar á reikningum eða tengingum við vefþjónustur
þjónustuaðila í úrgangsmeðhöndlun.
-
Get ég haft upplýsingar um fleiri umhverfistengda mælikvarða í mælaborðinu?
Já. Með lausnum frá Stiku Solutions er hægt að fylgjast með fjölbreyttum
umhverfistengdum mælikvörðum á einum stað.
Við aðlögum kerfið að þínum þörfum og sjálfvirknivæðum gagnasöfnun og
skýrslugerð, svo þú fáir betri yfirsýn með minni fyrirhöfn.
-
Hvernig styður SmartWaste Stiku við hringrásarhagkerfið?
SmartWaste gerir úrgang sýnilegan, frá uppruna til endurnýtingar. Með einföldum
aðgerðum er hægt að rekja meðhöndlun og ráðstöfun úrgangs á áreiðanlegan
hátt.
Notendur geta þannig sýnt fram á, með mælanlegum gögnum, hversu stór hluti
úrgangs fer í endurnýtingu og endurvinnslu. Þetta eykur gagnsæi, styður við
markmið um hringrásarhagkerfi og veitir betri yfirsýn yfir þennan mikilvæga hluta
virðiskeðjunnar.
-
Hvernig nýtist appið?
Með appinu er hægt að fylgjast með magni í hverjum gámi og óska eftir losun
þegar þeir eru að fyllast. Þjónustuaðili, sem einnig notar appið, staðfestir komu
sína og skráir magn úrgangs sem hann tekur á móti sem og hvert hann fer með
hann.
Þannig er hægt að losa gáma eftir þörfum í stað fyrirfram ákveðinna tímabila, sem
getur leitt til lægri rekstrarkostnaðar og aukinnar hagkvæmni.
Öll gögn sem verða til í appinu flæða sjálfkrafa inn í mælaborðið og veita
heildstæða yfirsýn.




